Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2015

Hvað ef?

efÞetta með að stærðin skipti ekki máli er alltaf að sanna sig enda ekki sagt útí hött. Hinir smáu hlutir eru bara oft svo stórir þegar á hólminn er komið. Þúfan vippar hlassinu trekk í trekk og fer létt með það. Meira að segja í tungumálinu eru orðin litlu einna áhrifaríkust. ,,Já" segir allt sem segja þarf. Það gerir ,,nei" líka ég meina það þarf ekkert mikið að rökræða þegar það er sagt þó einhver vilji nú samt meina að nei sé ekkert svar. Svo eru það hin dularfullu og spennandi litlu orð ,,en" og svo hið hikandi ,,ef". Efið á stóran þátt í mínu lífi og ég reikna með að ég sé ekki einn um það. Oft fer ég að hugsa og velta fyrir hver öllum þessum ef málum:

Ef ég hefði ekki fæðst.

Ef ég hefði ekki farið á Núpsskóla og hitt lífsförunaut minn.

Ef ég hefði ekki farið í leiklistarnám.

Ef ég hefði ekki stofnað Act alone.

Ef ég hefði ekki flutt á Ísafjörð. 

Ef ég hefði ekki stofnað kaffihúsið Langa Manga.

 

Já, það er gaman að velta sér uppúr því hvar maður væri ef öll þessi ef hefðu orðið að ekki. Eitt er allavega víst þá væri ég ekki hér. Og þá má spyrja sig.

Ef ekki hér hvar þá?


Í dag fór ég á hausinn, aftur

Hef aldrei þótt sleipur á svellinu ekki einu sinni þegar ég renndi mér á skautum á að dettavatninu við Litlu Eyrar fjöru á Bíldudal. Það var reyndar sjaldan það kalt á Bíldudal að skautafært væri. Enda ekki að ástæðulausu sem margir vilja frekar telja Bíldudal með Spánverjalandi frekar en einhverju ísalandi. Hitt er svo enn algengara að maður fljúgi á höfuðið án skauta og er það yfirleitt verra. Hvað þá eftir að fleiri ár bætast við lífsklukkuna. Ég flaug einmitt á höfuðið rétt áðan. Var að koma úr undirgöngunum hér í Strætinu á Ísó. á leið á vinnustofuna mína í Tónlistarskólanum, áður Húsmæðraskólinn. Flaug í loft upp líkt og þegar snillingurinn Laddi lék þetta svo snildarlega í einum gamanþætti á eittístímabilinu. Gott ef þessir þættir hétu ekki Gættu að því hvað þú gerir maður? Það er staðreynd að þegar maður er ekki viðbúinn þá verður fallið oft mikið og hátt allavega var þetta engin ofleikur hjá mér. Í loft upp fór ég og lenti á vinstri síðunni. Fyrsta sem ég gerði var ekki að strjúka síðuna. Nei heldur standa upp eins hratt og ég gæti einsog þetta hafi ekki gerst. Nei, ha ég, ég er bara góður sko. Leit snöggt í kringum mig. Sá byltuna einhver? Var einhver Gróa í glugganum í húsasundinu? Engan sá ég allavega svona snöggt til litið. Skundaði svo af stað einsog Grettir sterki eða Gísli Súri jafnvel. Þegar ég kom fyrir næsta horn var síðunni loks strokið og ég fann að hún var aðeins aumari en fyrir fallið. 

Öll föll eiga að kenna manni eitthvað og þetta hefur svo sannarlega gert það. Í raun var þetta bara mér sjálfum að kenna. Því ég fékk nefnilega frá mínum lífsförunaut sérstaka skó í jólagjöf. Sko með innbyggðum mannbroddum. Lykill fylgir með til að spenna þá niður á skóna og svo setja þá aftur í hvíldarstöðu þegar hálkunni sleppir. Ég er náttúrulega svo mikill víkingur að ég taldi nú litla þörf á að vera að skella þessu gamladóti á skóna. Ég leikarinn sem hefur leikið Gísla Súrsson í áratug og er svo byrjaður að túlka Gretti líka lætur nú ekki sjá sig á götum Vestfjarða með mannbrodda. 

Nei, nei ég er ekkert súr yfir þessu. Nú er ég með mannbroddalykilinn tilbúinn í vasanum og um leið og ég sé svell framundan á göngu minni þá set ég öryggið á skóbúnaðinn. Annars gæti ég átt von á að förunauturinn segi líkt og í sjónvarpinu fyrrum daga:

Gættu að því hvað þú gerir maður.

 


Minnsta óperuhús heims er á Vestfjörðum

grettir frumsÉg er svo heppinn að fá að vinna á mörgum stöðum og mörgum sviðum. Ég er nefnilega farandleikari ferðast um landið með sýningar mínar. Þó ég sé ekki gamall þá hef ég sýnt í mjög mörgum húsum og það er bara alveg stórkostlegt. Líklega heldur þetta manni einnig lifandi ekki bara fjárhagslega heldur og listrænt. Sífellt nýtt svið sem vissulega hefur áhrif á leikinn þó leikritið sé alltaf það sama. Vissulega hef ég lang mest leikið á Vestfjörðum enda á ég þar heima og ætla mér ekki þaðan. Ja, ekki nema þá til Danmerkur en það er allt önnur saga. Danir eru bara svo frábært fólk kannski eru þau bara Vestfirðingar eitthvað langt langt aftur. 

Á helginni (þetta er ísfirsk málvenja og ég fíla hana) þá bætti ég enn einu leik-húsinu við. Því þá sýndi ég í Minnsta óperuhúsi heims sem er nema hvað á Vestfjörðum. Þetta einstaka hús er á hinum sögufræga stað Vatnsfirði í Ísafjarðardjúpi. Þarna hafa nú margir kappar og kvinnur alið manninn. Sumir hafa líka droppað þarna við og jafnvel hefur það orðið þeim til lífs. Þannig var allavega með kappann Gretti sterka Ásmundarson en húsfreyjan í Vatnsfirði bjargaði honum úr snöru sveitunga hennar á ögurstundu. Eftir það dvaldi Grettir um hríð í Vatnsfirði hjá húsfreyju. Enda var bóndi hennar ekki heima, hann var á þingi kallinn. 

Kappinn Grettir var einmitt ástæða þess að ég var á sviðinu í Minnsta óperuhúsi heims í Vatnsfirði á helginni. Að frumsýna íslenskt leikrit er einfaldalega nefnist Grettir. Það var alveg einstök stemning í húsi óperunnar á laugardag á frumsýningu. Líkt og í sögunni af Gretti er mjög kalt og skammdegi mikið var það og í húsinu. Því þarna er hvorki hiti né rafmagn. Sýningargestir létu það nú ekki á sig fá. Allir klæddir föðurlandi og með heitt í bolla. Það er alltaf gaman að geta sýnt verkin manns á söguslóðum það hef ég oft gert með kollega Grettis Gísla nokkurn Súrsson sem hefur verið sýndur mjög víða á slóðum þess súra. Í Haukadal í Dýrafirði, í Geirþjófsfirði og meira að segja í Súrnadal í Noregi. Hvort minn Grettir verður jafn víðförull verður maður bara að bíða og sjá. Nú er þetta allt í höndum áhorfenda. 

Eitt er víst nú get ég merkt inná sýningarhúsakortið mitt enn einu exi, krossi, og nú við Minnsta óperuhús heims. 


38 ára gömul hljómplata slær aftur í gegn og það hjá sömu fjölskyldu

Það er kúnst að hlusta. Hvort heldur það er við að hlusta á útvarpið eða þann sem maður talar við þá og þá saga og peturstundina. Hver kannast ekki við það að viðmælandi manns virðist ekki vera að hlusta á mann. Þegar það gerist þá líður mér alltaf einsog persónu í leikriti eftir Samuel Beckett. Þykir það ekkert leiðinlegt því hann er einmitt mitt uppáhalds leikskáld. Skemmtilegast er þó þegar viðmælandinn hlustar ekki bara á mann heldur grípur hann líka fram í fyrir sjálfum sér. Þá þarf maður bara að gera það sama og félagarnir í Beckett meistarastykkinu, Beðið eftir Godot, bíða og hlusta.Í raun er maður að hlusta allann daginn meira að segja þegar maður er einn þá er maður alltaf að hlusta á eitthvað. Hér fyrir vestan er voða gott að hlusta á veðrið og setja sig í listamannastellingar og vera að pæla eitthvað voða merkilegt, sem oftar en ekki engin skilur en það er nú aukaatriði. Fátt er svo skemmtilegra en að hlusta á góða tónlist og hvað þá ef hún kemur frá hljómplötu, má gjarnan vera aðeins rispuð og spiluð. Í æsku hlustaði ég mikið á hljómplötur, já ég er orðinn þetta gamall, eða hvað er ekki hljómplatan að ,,koma svo mikið aftur" einsog álitsgjafar fjölmiðla segja svo oft. Mikið er það annars skrítið hve fámennur þessi álitsgjafa hópur er hjá ,,mediunni" ég meina er ekki mikilvægt að hafa þetta soldið opið heldur enn allt fast í kassa. Þetta er náttúrulega álitamál svo ekki meir um það heldur frekar að listinni að hlusta. Sumir vilja meina að okkar frábæra æska kunni ekki að hlusta. Gott ef þetta var nú ekki sagt einnig á mínum æskuárum. Ég var meira að segja að lesa heila ritgerð sem fjallaði um þetta málefni. Mjög vel unnið verk eftir Viktor Má Bjarnason og nefnist Eru börn hætt að hlusta? Ritgerð þessa má lesa á netinu og ég mæli með því að þið kikkið á hana um leið og þið t.d. hlutið á góða hljómplötu.

Á mínu heimili er aftur kominn í húsið hljómplötuspilari. Stoltin mín, dætur mínar þrjár, hafa allar fengið að kynnast hljóðheimi hljómplötunnar og gott ef þær eigi ekki bara góðar minningar um það þegar pabbi, einn ganginn enn, hóaði um leið og hann rótaði í hljómplötubúnka æsku sinnar. Dregur svo upp eina. Hver er það jú sama plata og síðast. Hin 38 ára gamla Pétur og úlfurinn. Ævintýri eftir Sergi Prokofieff þar sem sögumaðurinn er engin annar en Bessi Bjarnason. Hver var nú það, var þá gjarnan spurt? Eftir fylgdi örfyrirlestur pabbans um þennan einstaka gamanleikara og gjarnan endað á að leika afann í hinum einstöku sjónvarpsþáttum Föstum liðum einsog venjulega. Ef þetta vakti ekki kátínu þá var það bara klassíkin: Láttu ekki einsog þú sért ekki þarna ég sé þig vel, Lilli. Og þá loks var sagt: Já, hann. Nú er pabbinn aftur kominn í leikarargírinn og hefur reyndar hækkað í hlutverki því nú er hann orðinn afi. Um daginn kom prinsípesí afastelpan mín í heimsókn. Þegar það gerist þá leggur afinn allt annað frá sér og verður strax einsog afinn í Föstum liðum, já, já fer jafnvel í búninga. En þennan dag hafði afinn önnur áform já nú átti að kynna hinn dásamlega hljóðheim hljómplötunnar. Gömlu góðu barnahljómplötur æskunnar. Afi bara allt í einu orðinn ,,dídjey."

Fyrst var það Emil í Kattholti með Helga Hjörvar í hlutverki prakkarans en gaman er að geta þess að hann er enn í leikhúsinu og fer þar mikinn á pallinum. Svo var það náttúrulega hinn höfundur æskunnar Thorbjörn Egner fyrst Kardóið og svo Dýrin.Afinn hlustaði og fór jafnvel í barndóm því meðan á þessu stóð hafði hann byggt hús, bíl og flugvél, allt úr Legókubbum. Sú stutta dundaði sér einnig við þessa yðju og oftar en ekki tók hún undir. Sérstaklega þegar Mikki refur kom við sögu. Hljómplötuumslögin vöktu líka athygli hennar verst hvað það var lítið af myndum. En svo sá hún eina hljómplötu sem var með mörgum myndum og með nema hvað einum vondum. Úlfi. Stór mynd sem sýndi soltinn og slefandi trant úlfsins. En þarna var líka strákur. Í gulum bol með einskonar ofurhetju eldingingu á miðju bolsins.

Afi hlustum á þessa.

Nú varð sá gamli extra kátur. Vippaði nálinn af Hrekkjusvínum, en þá var það frábæra verk á fóninum. Varlega var svo sett nálin niður á hinni mjög svo kæru hljómplötu afans hinni 38 ára gömlu Pétur og úlfurinn með Bessa. Þetta var einsog í sögunni þarna sem engin man lengur hvað heitir, þakið datt nærri af húsinu. Slíkir voru töfrarnir. Mun minna var kubbað núna því við vorum að hlusta. Hlusta á hljómplötuna Pétur og úlfurinn með Bessa. Ég, afi gamli 43 ára gamall, og hans afa stelpa, alveg að verða þriggja. 

Í gær kom svo afaskottið í heimsókn og hvað haldiði að hún hafi sagt? Nema: Afi, hlusta á Pétur og úlfinn.

Það er dásamlegt að hlusta og hvað þá að geta hlustað saman. petur og ulfurinn


Sagan búin

bokastollBækur er nokkuð sem eru í miklu uppáhaldi á mínu heimili. Þrátt fyrir nýlega bætingu á bókahillum, já bara núna í haust, þá fækkar auðu hillunum hratt. Ljóst er að bráðlega verð ég að bjóða mínum betri helmingi með í Betra bak á Ísafirði og finna þar bókahillu sem passar við allar hinar. Reyndar er engin af þeim í stíl svo kannski er bara best að hafa þetta áfram fjölbreytt og skrautlegt alveg einsog íbúar hillanna. Í gær lauk ég við tvær bækur og engar smá bækur. Ég hef þann háttinn á einsog margir að vera að lesa nokkrar bækur í einu. Í gæraften fluttu sem sé tvær af náttborðinu og aftur í sína hillu, reyndar voru aðrar komnar á þeirra fyrrum stað nýfluttar vestur úr Góða hirðinum en það er bara gaman að vera í kompaní við einhvern annan t.d. Þórberg sem fer nú ört fjölgandi á ört stækkandi bókaheimili. En þessir doðrantar margumtöluðu voru hin áhrifaríka Kata eftir Steinar Braga, stundum varð ég bara að hvíla lesturinn svo tók þessi lesning á. Hinn doðranturinn einar hvað 532 síður ef ég man rétt er Harry Potter og Blendingsprinsinn sem ég hef verið að lesa með síðburði mínum. Það er alltaf svolítið sérstakt að klára bók, ljúka síðustu blaðsíðunni og bara allt í einu kemur að þessari stund. Að sagan sé búin. Þannig endum við nú oft lesturinn ég og afastelpan mín Saga Nótt. Sama hver sagan er þá endum við alltaf á því að segja eftir lokapunktinn. Sagan búin. Svo verður alltaf smá þögn, sem gerist nú reyndar sjaldan sem þegar við hittumst en svo tökum við upp næstu bók og byrjum að lesa. Þannig fylgir bókin manni alveg frá morgni til kvelds og þetta eru bara alveg dásamlegar stundir. Hvort heldur maður les fyrir sjálfan sig eða þá sem mestu skipta, börnin sín. 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband